Gunni S

31.01.2007 03:38:15 / gunni

Kominn úr pásu :)

Þetta var ekkert löng pása var það ?

    Vegna fjölda áskoranna ákvað ég að reyna byrja á essu bloggi aftur. Á orðið líka svo mikið af skyldmennum sem búa erlendis bæði systrum og öðru frændfólki sem maður heyrir orðið vart lengur í sem hafa kannski gaman af því að lesa um hvað maður er að gera í lífinu :) Sjáum til hvað ég endist lengi :)

    En allavega þá hefur nú líf mitt tekið miklum stakkaskiptum undanfarið ár. Ég kláraði stúdentinn frá Menntaskólanum Hraðbraut í júlí í fyrra (loksins). Ég fann ekkert nógu spennandi sem mig langaði að læra í háskólanum svo að ég sótti um hjá Slökkviliði Höfuðborgarsvæðisins og byrjaði að vinna þar síðasta haust og vinn þar enn. Tók líka þátt í fitness í haust og gekk bara vel þar :)

    Jæja ég ætla ekki að hafa þetta mikið lengra í bili, á eftir að uppfæra þessa síðu betur og segja frá ýmsu sem er að fara gerast hjá mér á næstunni ;)

Bless í bili

Ps. veit að klukkan er margt en ég bara var svo æstur yfir danaleiknum áðan að ég gat ekki sofnað :(

» 5 hafa sagt sína skoðun

14.03.2005 14:17:07 / gunni

Pása

í pásu í bili sé til hvort ég byrji attur seinna

» 5 hafa sagt sína skoðun